Fréttir af Gillí 3. nóv 2007

Eins og áður hefur komið fram þá er ástand Gíslínu alvarlegt en mikilvægt er fyrir ykkur að vita að hún er með meðvitund og ekki kvalin. Í dag var fjölskyldufundur þar sem mættu nánustu aðstandendur til að ræða við lækninn og sjúkrahúsprestinn um ástand Gillíar. Þetta var fróðlegur fundur og allir sáttir við að vita allt sem vita þarf og geta með því verið áframhaldandi stuðningur við Gillí. Starfsfólk líknardeildarinnar mælti með að aðeins nánustu aðstandendur skyldu koma í heimsókn og einnig var sett upp vaktaplan til að tryggja það að Gillí sé aldrei alein, sé alltaf með einhvern náinn hjá sér.
Sjúkrahúspresturinn mælti með því að fólk kæmi áleiðis kortum og bréfum með fallegum kveðjum til Gillíar með því að láta einhvern úr fjölskyldunni hafa þau eða skilja eftir við móttökuna á líknardeildinni.

Ragna mágkona og Rósa systir

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Ragnheiður , 3.11.2007 kl. 21:32

2 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Kæru Ragna og Rósa

Hjartand þakkir fyrir að leyfa okkur að fylgjast með líðan Gillíar. Öll höfum við miklar áhyggjur. 'Eg er þess fullviss að Gillí er í góðum höndum og mikill léttir að heyra að hún sé ekki þjáð. Gott að vita til þess að hún sé aldrei ein.

Hugur minn er stöðugt hjá þér Gillí mín, sakna þín mikið úr bloggheimum, mín kæra Það er mín heitasta ósk að þér líði eins vel og hægt er og að þér takist að safna kröftum smám saman. Þú hefur gefið mér svo mikið, ég vildi að ég gæti gert eitthvað fyrir þig í staðinn. Ég mun gera hvað ég get, sendi þér hlýja strauma og baráttukveðjur

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 3.11.2007 kl. 21:48

3 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Baráttukveðjur til þín elsku Gillí

Katrín Ósk Adamsdóttir, 3.11.2007 kl. 21:55

4 Smámynd: Benna

Gott að heyra að hún er ekki kvalin, það er fyrir öllu að henni líði eins vel og hægt er miðað við aðstæður.

Ég hugsa til hennar og ykkar allra, megi Guð styrkja ykkur öll...skilaðu góðri kveðju frá bloggvin.

Benna, 3.11.2007 kl. 21:56

5 identicon

Takk fyrir ad láta okkur vita af lídan Gíslínu.

Fallegar hugsanir til thín Gíslína mín  

Ragnheidur (ókunnug) (IP-tala skráð) 3.11.2007 kl. 22:00

6 identicon

Guð veri með þér og þínu fólki í þessari erfiðu baráttu

Hugsa til ykkar....

Kveðja Katrín.

Katrín (IP-tala skráð) 3.11.2007 kl. 22:01

7 identicon

Ég sendi allar mínar baráttukveðjur, Guð verið með ykkur 

Guðrún H (IP-tala skráð) 3.11.2007 kl. 22:06

8 identicon

Bið af öllu hjarta Guð og englahópinn stóra að vera með Gillí, þekki hana því miður ekki en hef litið inná síðuna hennar og finnst að maður sé þar ekki í góðum tilgangi og ókurteisi sé að gera ekki vart við sig. Þess vegna geri ég það þegar ég lít inn. Sé að ástand hennar er mjög alvarlegt og veit að allir sem að henni standa eru illa haldnir líka bið þess vegna hluta af englahópnum að styðja við bakið á því fólki öllu, Kára hennar sem hún hefur talað um á blogginu sendi ég sérstakar kveðjur vegna þess að hann er til viðbótar álaginu vegna sinnar góðu móður að takast á við að breyta sínu lífi til batnaðar og örugglega til blessunar sér og sínum. Duglegur strákur þar.

kærleikskveðja frá Sólveigu

Sólveig (IP-tala skráð) 3.11.2007 kl. 22:18

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.11.2007 kl. 22:36

10 Smámynd: HAKMO

HAKMO, 3.11.2007 kl. 22:39

11 identicon

Jóhanna ókunn en hefur fylgst með þér kæra vina, þú ert hetja

Jóhanna Jóhannsdóttir (IP-tala skráð) 3.11.2007 kl. 23:34

12 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Halldór Egill Guðnason, 3.11.2007 kl. 23:39

13 identicon

Reynir (IP-tala skráð) 3.11.2007 kl. 23:40

14 identicon

Sigrún Theresa (IP-tala skráð) 3.11.2007 kl. 23:43

15 identicon

Kæra fjölsk, Guð gefi ykkur góða nótt.

Kristín (IP-tala skráð) 3.11.2007 kl. 23:57

16 identicon

inga (IP-tala skráð) 4.11.2007 kl. 00:13

17 identicon

Guð og gæfa veri með þér og þínum alla tíð.

  

Kærar kveðjur Hulda og fjölskylda og fjölskyldan Bláfeldi.

Hulda og fjölskylda og fjölskyldan Bláfeldi. (IP-tala skráð) 4.11.2007 kl. 00:23

18 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Kæra systir og mágkona

Miklar þakkir fyrir að senda okkur bloggvinum Gíslínu fréttir af henni. Gott að vita að henni líður vel og er í góðum höndum. Færið henni kveðju mína og þau boð að ég sendi henni herskara af bataenglum til að vernda hana og styrkja. Guðsblessun til ykkar allra og sérstakar kveðjur til hetjunnar. Kveðja Fríða 

Hólmfríður Bjarnadóttir, 4.11.2007 kl. 01:37

19 identicon

Hildur (IP-tala skráð) 4.11.2007 kl. 02:41

20 identicon

Elsku Gillí mín,

Ég hugsa mikið til þín og bið að góður Guð vaki yfir þér og láti þér líða vel. Ég er enn í einangrun en henni lýkur sennilega á morgun og þá má ég fljótlega fara heim. Sigga Hanna biður líka kærlega að heilsa þér.

- kveðjur, þín vinkona Gunna

Gunna Axels (IP-tala skráð) 4.11.2007 kl. 09:42

21 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

                    

Sendi fjölskyldunni allri, goðar kveðjur og megi góður Guð styrkja ykkur öll.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 4.11.2007 kl. 10:29

22 identicon

Elsku Gillí...sendi þér styrk og orku til þess að takast á við þessar erfiðu baráttu.Takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með þér og bið guð að leiða þig og fjölskyldu þína áfram.Það er gott að vita til þess að þú kvelst ekki og allt er gert til að þér líði sem best.Kærleikskveðjur

Björk töffari (IP-tala skráð) 4.11.2007 kl. 12:12

23 identicon

Takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með . Megi góður Guð styrkja ykkur og blessa .

Kristín (IP-tala skráð) 4.11.2007 kl. 13:25

24 identicon

Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 4.11.2007 kl. 13:40

25 identicon

kveðjur til þín Gillí og þinna megi Guð og hans englar vera með ykkur

kveðja Ellen 

Ellen (IP-tala skráð) 4.11.2007 kl. 13:46

26 Smámynd: lady

elsku Gillí mín ég hugsa til þín og til fjölsk kveiki á kerti í kvöld og sendi þér kveðju  vonandi nærðu að hvílast vel og ert verkjalaus   og takk að leyfa manni að fylgjast með þér og ég finnst  að ég eigi eitthvað í þér elsku  Gillí mín með Guð vaka yfir þér 

lady, 4.11.2007 kl. 13:50

27 identicon

 Ég sendi þér hlýja strauma  og kveiki á kerti og bið Guð að vaka yfir þér .

Ragga (IP-tala skráð) 4.11.2007 kl. 14:18

28 identicon

Baráttukveðjur til þín Gillí, Guð verði með þér og þínum

Ragnhildur (IP-tala skráð) 4.11.2007 kl. 15:21

29 identicon

Mér finnst ástæða til að þakka ykkur, Rósa og Ragna, fyrir að koma fréttunum á framfæri við umheiminn. Það hefur kannski ekki nógu oft komið fram hjá okkur hinum hvað Gillí hefur gott fólk í kringum sig, fjölskylduna, börnin, foreldrana, systkini, tengdafólk. Mér finnst ástæða til að hrósa ykkur öllum og svo er stelpan að sjálfsögðu sjálf alveg einstök, það vita allir. Bestu kveðjur til Gillíar og ykkar allra.

Haraldur Ingólfsson (IP-tala skráð) 4.11.2007 kl. 16:45

30 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 4.11.2007 kl. 18:34

31 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sendi Gillí  bestu kveðjur og ég mun biðja fyrir henni  og ykkur öllum.
                                       Kærleikskveðjur.
                                                 Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 4.11.2007 kl. 21:17

32 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Englakveðjur

Margrét St Hafsteinsdóttir, 4.11.2007 kl. 22:27

33 identicon

Kaera Gilli og fjolskylda minar bestu kvedjur og hlyjar hugsanir til ykkar allra. Erna fra Stakkhamri

Erna fra Stakkhamri (IP-tala skráð) 4.11.2007 kl. 23:03

34 Smámynd: Þórdís tinna

 Guði veri með ykkur og gefi ykkur öllum styrk  -  ég hugsa stöðugt til þín Gillí mín

Þórdís tinna, 4.11.2007 kl. 23:49

35 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Sama hér, hugur minn er stöðugt hjá þér og þínum. Hef beðið stíft um hjálp og trúi því að hún verði veitt. Sakna þín mikið.

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 4.11.2007 kl. 23:53

36 identicon

Guð veri með ykkur

Hjördís Ósk (IP-tala skráð) 5.11.2007 kl. 09:58

37 Smámynd: Hugarfluga

Guðs blessun til ykkar allra. 

Hugarfluga, 5.11.2007 kl. 10:12

38 identicon

Guð veri með ykkur. ÞÞK

Þuríður Þorbjörg Káradóttir (IP-tala skráð) 5.11.2007 kl. 11:14

39 identicon

Guð blessi ykkur í þessum erfiðu aðstæðum

Sandra (IP-tala skráð) 5.11.2007 kl. 15:01

40 identicon

Guð veri með Gillí og ykkur öllum, kærar kveðjur, Systa.

Þuríður Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 5.11.2007 kl. 20:09

41 Smámynd: Ragnheiður

Elskulega Gillí, ég er búin að lesa pistilinn frá Önnu og hann er svo fallegur. Kær kveðja til þín og ég vona að þú hafir það eins gott og búast má við. Það eru snillingar þarna við fallega voginn, sérstaklega í verkjameðferð og vonandi ertu laus við kvalir.

Bænir mínar fylgja þér og þínu fólki.

Ragnheiður , 5.11.2007 kl. 20:18

42 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Sendi þér ljós, frið og kærleika kæra vinkona sem ég hef aldrei séð. Ég finn til samkenndar með þér og öllu þínu fólki. Guð blessi ykkur öll. Fríða

Hólmfríður Bjarnadóttir, 6.11.2007 kl. 13:11

43 identicon

Anna (IP-tala skráð) 6.11.2007 kl. 15:22

44 identicon

Hugsa mikið til ykkar allra þó ég þekki ykkur ekki nema héðan af blogginu. Ef ég get eitthvað aðstoðað við bara hvað sem er þá er síminn minn 8224844.

Guð varðveiti ykkur,

kveðja,

Jónína Ben 

Jónína Benediktsdóttir (IP-tala skráð) 6.11.2007 kl. 16:01

45 identicon

  Guð veri með ykkur og gefi ykkur styrk    

kveðja

Diddi 

Diddi (IP-tala skráð) 6.11.2007 kl. 16:35

46 Smámynd: Þórdís tinna

 Elsku Gillí mín, bara að kíkja eftir þér- Guð veri með þér elskan mín 

Þórdís tinna, 6.11.2007 kl. 16:52

47 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Rétt að kvitta fyrir heimsókninni Gillí mín, hugsa til þín sem fyrr

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 6.11.2007 kl. 18:37

48 identicon

Hugsa til þín og þinna kæra Gíslína

Ragnheidur (ókunnug) (IP-tala skráð) 7.11.2007 kl. 10:37

49 identicon

Ég sendi kærar kveðjur til þín kæra Gíslína!  Guð veri með þér og fjölskyldunni 

Heiða (systir Hildar Sif) (IP-tala skráð) 7.11.2007 kl. 11:04

50 Smámynd: Ragnheiður

 hugsa til þín elskuleg

Ragnheiður , 7.11.2007 kl. 13:30

51 identicon

Hugsa til þín Gíslína. Guð veri með ykkur góða fjölskylda og gefi ykkur styrk. Kveðja, Helga (ókunnug).

Helga Þorkelsdóttir (IP-tala skráð) 7.11.2007 kl. 13:33

52 Smámynd: Ásta Björk Hermannsdóttir

Kærar kveðjur frá mér til ykkar allra Guð varðveit ykkur öll

Gott að fá að fréttir frá ykkur, takk fyrir það Ragna og Rósa 

Ásta Björk Hermannsdóttir, 7.11.2007 kl. 16:31

53 identicon

Guð veri með þér og þínu elsku Gillí

Hugsa til þín og kveiki á kerti fyrir þig

BaráttuKveðja Sigga

Sigríður Inga (IP-tala skráð) 7.11.2007 kl. 16:31

54 identicon

Guð veri með ykkur og gefi ykkur styrk.

Baráttukveðja

Gulla

Guðrún Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 7.11.2007 kl. 17:11

55 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

 

Gunnar Helgi Eysteinsson, 7.11.2007 kl. 17:39

56 identicon

Hugsa mikið til þin kæra Gillí,Guð gefi ykkur öllum styrk.

Kveðja

Sigrún Theresa (IP-tala skráð) 7.11.2007 kl. 18:03

57 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Hugur minn hjá þér Gillí mín. Sendi þér og þínum kærar kveðjur.

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 7.11.2007 kl. 18:54

58 identicon

Elsku Gillí og fjölskylda.

Mikið er fallegt af ykkur að leyfa okkur að fylgjast með.

Stórt faðmlag frá okkur.

Bryndís og fjölskyldan öll.

Bryndís (IP-tala skráð) 7.11.2007 kl. 19:02

59 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Þú ert í huga mínum og bænum. Sendi þér einlægar bata- og kærleikskveðjur. Bið englahópinn minn að vaka yfir þér og öllu þínu fólki. Fríða

Hólmfríður Bjarnadóttir, 7.11.2007 kl. 19:23

60 identicon

Elsku Gillí. Ég bið Guð að gefa þér og fjölskyldunni þinni styrk í þessari erfiðu baráttu. Ég hugsa til þin á hverjum degi, oft á dag, og bið um kraftaverk.  

Kær kveðja

Inga Guðmundsdóttir 

Inga Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 7.11.2007 kl. 19:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband