21.3.2007 | 10:42
Nýtt framboð
Humm...veit ekki hvort við erum að tala um sömu Ljósufjöllin ég og myndin en kannski líta þau svona út í nærmynd. Ef einhver veit nákvæmlega hvaða Ljósufjöll við erum með hér fyrir ofan þá má sá hinn sami miðla visku sinni.
Held að ég noti þessa síðu til að koma á framfæri kosningaáróðri fyrir nýstofnaðan flokk míns eigin egós sem mun hafa það tvennt á stefnuskránni að vinna baki brotnu að velferð atvinnusjúklinga og að ganga í Evrópusambandið sem allra fyrst. Flokkurinn mun auljóslega geta boðið fram í öllum kjördæmum því enginn landshluti fer varhluta af veiku og skammlífu fólki svo við sem erum ekki orðnir ellilífeyrsþegar, eigum núna ....þökk sé mér....talsmann og tilvonandi þingmann fyrir hönd nýstofnað veikindaflokks.......auglýsi hér með eftir góðu nafni á framboðið.
Helstu stefnumál:
Gera alla núverandi þingmenn að sjúklingum, láta leggja þá inn á yfrfullardeildir spítalanna....setja þá á orörkubætur sem þeir fá þá vísast engar þar sem þeir hafa of háar tekjur....útskrifa þá svo með láði, láta þá lifa af 60.000 á mánuði eða jafnvel minna í svona eitt ár og biðja þá um að finna út án hjálpar hvaða rétt þeir eiga í velferðarkerfinu. Sjá svo til hvort eitthvað breytist á Alþingi eftir þessa endurhæfingu. Bannað að nota sjúkdómatryggingar á meðan.
Setja HÁTT þak á tegjutengingu elli- og örorkulífeyris
Hækka þessar bætur um 100% fyrsta árið og svo um önnur 100% á því næsta
Fríar tannlækningar barna til 18 ára aldurs
Hætta við framboð til öryggsráðsins og setja peninginn í að halda opnum þeim deildum á spítölunum sem verið er að leggja niður.
Álver liðin tíð - hugvits og fjármálafyrirtæki framtíðin
Vernda náttúruna með öllum hugsanlegum ráðum
Hefja heimaflokkun á sorpi og endurvinnslutunnur við hvert hús sem tæmdar eru af borgarstarfsmönnum
Borga ungum mæðrum heimalaun ef þær vilja sjá um börnin sín heima í stað þess að vinna úti
Afla tekna í ríkiskassann með sparnaði í flottheitapakkanum og hækka skatta á þá ríkustu, hækka eignaskatt (ekki á aldraða), stighækkandi tekjuskatttur og skylda þá sem eiga xxx margar milljónir til að setja xxx milljónir í velferðarmál gegn lægri skattlagningu.
Koma vöruflutningum aftur á sjó eða loft og banna vöruflutninga á landi
Fleiri málaflokkar kynntir síðar.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.3.2007 | 09:08
Elti tískuna
Núna er í tísku að eiga bloggsíðu hjá mbl. Þar sem ég sækist eftir frægð og frama eins og aðrir Íslendingar þykir mér rétt að koma mér á framfæri í þessum nýja netheimi. Hvort hér verði skrifaðir háalvarlegir pólitískir pislar eða létt hjal um lífsins gagn og nauðsynjar kemur í ljós en aðalatriðið er að senda vinum og ættingjum fréttir af mér og mínum og þá sérstaklega mér svo lengi sem ég hangi á lífi......sem vonandi verður nú í einhver ár, annað kemur ekki til greina af minni hálfu enda mottó lífsins að sjá fyrir mér framtíðina bjarta og heilsuhrausta í fullu fjöri að njóta lífsins hér heima og erlendis með Palla og strákunum og öllum hinum sem mér þykir vænt um.
Frægðin væri bónus sem ég réði sennilega ekki við svo vonandi lætur hún bíða eftir sér. Hér í þessum heimi er hins vegar svo margir möguleikar á skemmtilegum stillingum að mér fannst upplagt að opna hér síðu og skrifast á við ykkur um margt stórt eða lítið sem ekki neitt.
Myndin hér fyrir ofan er af Ljósufjöllum og þar sem ég ólst upp með Ljósufjöllin beint fyrir utan eldhúsgluggan heima í Dal fannst mér tilvalið að smella þeim hér efst á síðuna mína.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)