31.10.2007 | 10:29
Gillí bað mig um að segja ykkur......
Gillí sendi mér sms í morgun og bað mig koma upplýsingum á framfæri.
Hún er á leiðinni á Landspítalann í aftöppun. Það á að stinga á lungun tappa af og síðan á að reyna að setja dren í kviðinn. Hún getur af þeim sökum ekki tekið á móti heimsóknum í dag né tekið við símtölum. Að auki er raddleysið farið að há henni og veitir því ekki af hvíldinni.
Bestu kveðjur til ykkar allra
Ragna Mágkona
Athugasemdir
Þú skilar hlýrri kveðju til hennar ef hún kemst ekki til að sjá það sjálf. Megi Guð vera með henni og ykkur fólkinu hennar. Vonandi næst að láta henni líða betur þegar aftöppun verður lokið
Ragnheiður , 31.10.2007 kl. 10:57
Guð veri með þér Gillí mín
Þórdís tinna, 31.10.2007 kl. 10:57
Kærar þakkir fyrir skilaboðin. Mínar bestu kveðjur á Lansann. Guð veri með ykkur öllum og færi Gíslinu góða líðan og bataFríða
Hólmfríður Bjarnadóttir, 31.10.2007 kl. 11:02
Ég verð með henni í huganum. Hlýjar kveðjur til þín líka Ragna mín og Egill.
Anna Einarsdóttir, 31.10.2007 kl. 11:14
Til ykkar líka.... átti þetta auðvitað að vera.
Anna Einarsdóttir, 31.10.2007 kl. 11:16
Sendi ljós&kærleika yfir Flóann.
Kv. af Skaganum...
SigrúnSveitó, 31.10.2007 kl. 11:23
Elsku Ragna
Takk fyrir skilaboðin og innilegar samúðakveðjur til þín sjálfrar.
Sigrún á Bifröst (IP-tala skráð) 31.10.2007 kl. 11:57
Guð verði með þér og þínum. Kkv.ÞÞK
Þuríður Þorbjörg Káradóttir (IP-tala skráð) 31.10.2007 kl. 12:03
Knúsar til þín og þína. Hugsa hlýtt til ykkar allra
Kveðja Kata Björg, dóttir Guðrúnar Jónu
Kata (IP-tala skráð) 31.10.2007 kl. 12:14
Kæra Gillí, vonandi færir þessi heimsókn á Landspítalann þér betri líðan og bjartari daga. Kær kveðja til þín og fjölskyldu þinnar
Elísabet
Elísabet (IP-tala skráð) 31.10.2007 kl. 12:30
Elsku Gillí! Nú er ég loksins komin á stjá aftur. Bið guð og góða vætti að vernda þig og styðja, og alla þína nánustu. Ég vil líka biðja fyrir baráttukveðju til Kára og samúðarkveðju til Rögnu og fjölskyldu. Koss og knús til ykkar allra
Ebba
Ebba (IP-tala skráð) 31.10.2007 kl. 13:23
Gangi þér sem allra best, þú þarft að taka allan þann tíma sem þú þarft til hvíldar og til að jafna þig. Þetta eru töluverð inngrip. Hugsa til þín og sendi þér alla þá strauma sem ég á til.
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 31.10.2007 kl. 13:30
Sendi baráttu og kærleikskveðju frá Sólveigu
Sólveig (IP-tala skráð) 31.10.2007 kl. 15:13
Elsku Gillí...guð veri með þér í þessari erfiðu baráttu.
Björk töffari (IP-tala skráð) 31.10.2007 kl. 16:25
Elsku Gillí og fjölskylda. Hugur minn er hjá ykkur. Innilegar baráttukveðjur úr Borgarnesi. Bið einnig fyrir kveðju til Kára í hans baráttu
Kv. Raggi
Ragnar Gunnarsson, 31.10.2007 kl. 18:31
Kæra Gíslína,
Ég sendi þér mínar bestu baráttukveðjur. Ég hef oft hugsað til þín í þessum erfiðleikum og líka frétt af frábærum dugnaði þínum og lífskrafti. Því miður var ég fyrst í dag að uppgötva síðuna þína. Bið að heilsa þér og þínum.
Valgeir Bjarnason (IP-tala skráð) 31.10.2007 kl. 22:00
Kæra Gíslína,
Ég sendi þér mínar bestu baráttukveðjur. Ég var að uppgötva síðuna þína. Ég hef oft hugsað til þín í erfiðleikum þínum, en jafnframt dáðst að baráttu- og lífskrafti þínum.
Kærar kveðjur til þín og allra aðstandenda
Valgeir Bjarnason, 31.10.2007 kl. 22:07
Knús til þín og vonandi ertu að hressast
Katrín Ósk Adamsdóttir, 1.11.2007 kl. 15:56
Baráttukveðjur til þín Gíslína. Hef haldið upp á nafnið þitt frá því ég var ung stúlka. Kynntist þá konu með þessu nafni og er mér hugstæð.
Edda Agnarsdóttir, 1.11.2007 kl. 17:31
Baráttukveðjur elsku Gillí.
Kertasíðan
Ragnheiður , 1.11.2007 kl. 19:38
Sendi þér baráttukveðjur.
Fjóla Æ., 1.11.2007 kl. 19:45
Barátta Gillíar hefur opnað augu margra. Það er ekkert fjall svo hátt að ekki megi reyna að klífa það. Hið óyfirstíganlega getur verið svo yfirþyrmandi stórt og óhuggulegt að það er erfitt að horfast í augu við það. Gillí gerir það og viti menn þá virðist andstæðingurinn skreppa saman og jafnvel eitt augnablik hættir hann að virðast svo hræðilegur. En hann er slyngur og snúinn og hreint ekki svo auðvelt að kveða hann endanlega í kútinn, það eru þó til hetjur sem gefast ekki upp fyrr en í fulla hnefana.
Kærar kveðjur til þín Gillí og þinna vandamanna. Ásdís og Ágúst (úr Suðurbyggð 7)
Ásdís (IP-tala skráð) 1.11.2007 kl. 20:27
Guð veri með þér Gillí mín, ég mun kveikja á kerti fyrir þig sæta og biðja Guð að vaka yfir þér og gefa þér styrk:)
Benna, 1.11.2007 kl. 20:54
Ég vona að þú farir að hressast ,ég fór áðan og kveikti á kerti handa þér eins og oft áður og ég bið þess að þér batni elsku Gillí og knús til þín og fjölskyldu þinnar.
Katrín Ósk Adamsdóttir, 1.11.2007 kl. 20:55
Æjæjæjjjj en leitt að heyra :( Guð gefi þér sálarfrið og taki allan ótta í burt frá þér !!! Ég krefst þess að lækning komist að þér til anda sálar og líkama !!! baráttukveðja
Helga
Helga Lúthersdóttir (IP-tala skráð) 3.11.2007 kl. 16:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.